Alþingishúsið í Reykjavík
Þann 1. apríl 1952 kom út almennt frímerki með mynd af Alþingishúsinu í Reykjavík.Verðgildi þessa frímerkis voru 25 krónur. Var það langhæsta verðgildi, sem póststjórnin hafði gefið út til þessa. Var um þetta leyti orðin þörf fyrir svo hátt verðgildi á ýmsar verðsendingar og eins stærri bögglasendingar.
Alþingishúsið var reist á árunum 1880-1881 á lóð við Kirkjustræti og vestan við Dómkirkjuna í Reykjavík. Uppdrátt hússins gerði danskur arkitekt, F. Meldahl.
Stefán Jónsson arkitekt teiknaði þetta frímerki.
Verkið er prentað á 40x50cm hágæða off-white 220gr pappír. Hægt er að kaupa verkið upprúllað í hólk eða í tvennskonar viðar römmum annars vegar svartan 40x50 cm Nielsen Quadrum og 40x50cm Nielsen Scandic úr eyk, rammarnir er með glampafríu gleri ásamt 70% sólarvörn.
Alþingishúsið
13.900krPrice